Skilmálar þessir gilda um notkun á vefsvæði Aurlindar og þeirri stafrænu þjónustu sem Aurlind býður upp á hverju sinni. Með því að heimsækja vefsvæði Aurlindar eða nýta þjónustu þess samþykkir þú skilmála þessa. Aurlind áskilur sér rétt til að breyta skilmálum án fyrirvara. Nýjustu skilmálar eru ávallt aðgengilegir á vefsvæði Aurlindar.
Aurlind er upplýsingaveita og greiningarvettvangur fyrir fjárfesta á fasteignamarkaði. Á vefnum er m.a. að finna: reiknivélar fyrir langtímaleigu og aðrar fasteignatengdar fjárfestingar, fræðsluefni og blogg, yfirlit og upplýsingar um atvinnueignir, sniðmát og leiðbeinandi skjöl tengd fasteignaviðskiptum (t.d. kaupsamninga), tengingar við upplýsingar eða verðmat frá þriðju aðilum, svo sem Creditinfo, eftir því sem við á. Þjónustan er í boði án endurgjalds. Aurlind áskilur sér rétt til að breyta innihaldi, virkni eða aðgengi að þjónustunni, tímabundið eða varanlega, eftir því sem þróun vefsvæðisins kallar á.
Sem stendur er ekki boðið upp á áskriftir, notendaaðganga eða innskráningu á Aurlind. Aurlind safnar ekki, geymir ekki og vinnur ekki persónuupplýsingar notenda í þeim tilgangi að stofna notendareikninga eða halda utan um persónulega prófíla. Komi síðar til þess að boðið verði upp á skráningu, aðganga eða áskriftir, verða skilmálar þess efnis kynntir sérstaklega.
Notkun Aurlindar er heimil í persónulegum og/eða faglegum tilgangi tengdum fasteignafjárfestingum. Óheimilt er að: nota vefsvæðið í ólögmætum tilgangi, reyna að raska öryggi, virkni eða aðgengi vefsvæðisins, afrita, endurnýta eða dreifa efni í viðskiptalegum tilgangi án samþykkis.
Upplýsingar, greiningar og reiknivélar á Aurlind eru settar fram í fræðslu- og upplýsingaskyni. Þær fela ekki í sér fjárfestinga-, lögfræði- eða skattaráðgjöf og eru ekki ætlaðar sem grundvöllur að bindandi ákvörðunum. Aurlind leitast við að hafa efni rétt og uppfært, en ábyrgist hvorki nákvæmni né að niðurstöður reiknivéla endurspegli raunverulegan árangur fjárfestinga. Allar ákvarðanir sem notandi tekur á grundvelli efnis á vefnum eru á eigin ábyrgð. Aurlind ber ekki ábyrgð á tjóni sem kann að verða vegna notkunar vefsvæðisins, tæknilegra bilana, truflana á aðgengi eða rangra upplýsinga frá þriðju aðilum.
Sumt efni eða virkni á Aurlind kann að byggja á gögnum eða upplýsingum frá þriðju aðilum, svo sem Creditinfo. Aurlind hefur ekki stjórn á innihaldi slíkra gagna og ber ekki ábyrgð á nákvæmni þeirra eða uppfærslum. Aurlind ber heldur ekki ábyrgð á þjónustu, vörum eða upplýsingum sem veittar eru af þriðju aðilum, jafnvel þótt vísað sé til þeirra á vefnum.
Aurlind leggur áherslu á að safna ekki persónuupplýsingum notenda að óþörfu. Þar sem engin innskráning eða notendareikningar eru í boði eru persónuleg gögn ekki vistuð í slíkum tilgangi. Vefsvæðið kann þó að nota nauðsynlegar vefkökur (cookies) í tæknilegum eða greiningar tilgangi, til að bæta virkni og notendaupplifun. Nánari upplýsingar um vefkökur og meðferð gagna koma fram í persónuverndarstefnu Aurlindar.
Allt efni á vefsvæði Aurlindar, þar á meðal textar, reiknivélar, útlit og hugbúnaður, er eign Aurlindar eða viðkomandi rétthafa og nýtur verndar samkvæmt höfundarrétti. Óheimilt er að endurbirta eða dreifa efni án skriflegs leyfis.
Aurlind getur uppfært skilmála þessa hvenær sem er. Nýjustu útgáfur verða birtar á vefsvæðinu. Verði um verulegar breytingar að ræða verður þeirra getið sérstaklega. Með áframhaldandi notkun þjónustunnar telst þú hafa samþykkt uppfærða skilmála.
Ákvæði og skilmálar þessir lúta íslenskum lögum. Komi upp ágreiningur í tengslum við notkun á Aurlind skal slíkur ágreiningur leystur fyrir íslenskum dómstólum.