Logo

Auglýsing

FRÉTTIR

March 3, 2021

Hvers virði er þín fasteign?

Hero image for Hvers virði er þín fasteign?

Allar fasteignir eru mismunandi og það eru gríðarlega margar breytur sem hafa áhrif á verðmat á húsnæði. Það eru engar formúlur sem segja þér nákvæmlega verðmatið á eigninni.

Hins vegar geturðu fundið út úr því sjálf/sjálfur hvað þú myndir sirka geta selt þína eign á mikið.

Hér eru nokkur ráð til að þú getir fengið gróft mat á hvers virði þín fasteign er:

Fyrsta sem er gott að athuga er fasteignamatið á þinni fasteign en það er hægt að finna með því að leita í fasteignaskrá inn á Þjóðskrá og setja inn heimilisfangið: Fasteignaskrá

Næsta skref væri að fara inn á fasteignir.is og skoða verðin sem er verið að setja á fasteignir í svipaðri stærð og svipuðu ástandi. T.d. er gott að bera saman ástand á baðherbergi, eldhúsi og ef fasteignin þín þarfnast einhvers viðhalds er gott að finna eignir sem þurfa svipað viðhald.

Síðan er hægt að nota síður eins og https://aurbjorg.is/verdmat til að fá enn nákvæmara mat á fasteigninni.

Þegar það er búið að fara í gegnum þessi skref þá ættir þú að vera komin með betri mynd á hvers virði þín eign er.

Annars er líka mjög gott að fá frítt verðmat frá fagmanni til að vita hversu nákvæmt verðmatið manns var.

Ef þú ert í söluhugleiðingum, smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.

Auglýsing

Deila grein

Höfundur

Aurlind - Fréttir

Nýjustu fréttir og greiningar, beint frá Aurlind.

Lesa meira