Logo

Auglýsing

FRÉTTIR

June 1, 2021

7,4% hækkun á fasteignamati

Hero image for 7,4% hækkun á fasteignamati

Heildarmat fasteigna á Íslandi hækkar um 7,4% fyrra ári og verður 10.340 milljarðar króna, samkvæmt nýju fasteignamati Þjóðskrár fyrir árið 2022. Mest er hækkun fasteignamats á Vestfjörðum eða um 16,3%. Þetta er umtalsvert meiri hækkun en tilkynnt var um fyrir ári síðan þegar fasteignamat hækkaði um 2,1% á landinu öllu.

Hér getur þú flett upp fasteignamatinu á þinni fasteign fyrir árið 2022.

Heildarfasteignamat á höfuðborgarsvæðinu hækkar um 8% en um 5,9% á landsbyggðinni. Mesta hækkunin er á Vestfjörðum eða um 16,3%, hækkunin er 8,6% á Norðurlandi vestra, 6,7% á Suðurlandi, 6,6% á Austurlandi, 5,1% á Suðurnesjum, 4,8% á Vesturlandi og 4,2% á Norðurlandi eystra.

Af einstaka bæjarfélögum hækkar heildarfasteignamat mest Í Bolungarvík eða um 22,8%, um 18,9% í Ísafjarðarbæ og um 15,3% í Vesturbyggð. Mesta lækkunin er í Skorradalshreppi þar sem fasteignamatið lækkar um 2,6%.

„Við erum að sjá nokkuð meiri hækkun á fasteignamati heilt yfir landið en fyrir ári síðan sem er í takt við þróun fasteignaverðs á tímabilinu febrúar 2020 til febrúar 2021. Fyrir ári síðan ríkti nokkur spenna um hvaða áhrif Covid-19 myndi hafa á matið en við sjáum að aðrir þættir eins og lægri vextir hafa haft talsverð áhrif á fasteignamarkaðinn og þar með fasteignamatið,“ segir Margrét Hauksdóttir forstjóri Þjóðskrár um fasteignamatið sem Þjóðskrá gefur út. Almennt eru litlar breytingar á aðferðarfræði fasteignamats á milli ára að þessu sinni.

Sjá einnig: Hver er munurinn á fasteignamati og söluverðmati?

Fasteignamat sumarhúsa hækkar um rúm 4%
Fasteignamat sumarhúsa fyrir árið 2022 hækkar að meðaltali um 4,1% þegar litið er á landið í heild. Mesta hækkunin er á höfuðborgarsvæðinu þar sem sumarhús hækka um 9,4% en minnst á Vesturlandi þar sem hækkunin er 1,2%.

Fasteignamat atvinnuhúsnæðis hækkar um 6,2% á landinu öllu; um 5,4% á höfuðborgarsvæðinu en um 8,0% á landsbyggðinni.

Nánari upplýsingar um fasteignamat 2022
Eigendur fasteigna geta frá 15. júní nálgast tilkynningarseðil um mat á eignum sínum í pósthólf sitt á www.island.is.
Langflestar fasteignir eru endurmetnar árlega út frá nýjustu matsforsendum og byggir meðal annars á upplýsingum úr þinglýstum kaupsamningum auk fjölmargra annarra þátta sem hafa áhrif á verðmæti fasteigna. Nýja fasteignamatið miðast við verðlag fasteigna í febrúar 2021. Það tekur gildi 31. desember 2021 og gildir fyrir árið 2022. Frestur til að gera athugasemdir við nýtt fasteignamat er til 30. desember 2021.

Auglýsing

Deila grein

Höfundur

Aurlind - Fréttir

Nýjustu fréttir og greiningar, beint frá Aurlind.

Lesa meira