Logo

Auglýsing

FRÉTTIR

October 18, 2022

Er þetta EKKI toppurinn á fasteignamarkaði?

Hero image for Er þetta EKKI toppurinn á fasteignamarkaði?

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,8% á milli mánaða frá ágúst til september 2022. Svo virðist sem að það sé enn einhver hækkun á fasteignamarkaði, en erfitt að segja um hvort að toppnum sé náð eða hvort einhver hækkun muni eiga sér stað, og hve mikil hún verður.

Sjá einnig: Fasteignamarkaður kólnar ansi hratt

12 mánaða hækkun vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu stendur þá í 22,5%. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 1,5% og síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 9,8% samkvæmt HMS.

Það verður spennandi að sjá hvernig meira framboð húsnæðis og hærri vextir hafa áhrif á fasteignamarkaðinn.

Hér fyrir neðan er hægt að sjá þróun vísitölu íbúðaverðs:

Auglýsing

Deila grein

Höfundur

Aurlind - Fréttir

Nýjustu fréttir og greiningar, beint frá Aurlind.

Lesa meira