Logo

Auglýsing

FRÉTTIR

September 26, 2022

Er þetta toppurinn á húsnæðismarkaði?

Hero image for Er þetta toppurinn á húsnæðismarkaði?

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 0,4% á milli mánaða frá júlí til ágúst 2022. Þetta er í fyrsta sinn frá því í apríl 2020 sem vísitalan lækkar á milli mánaða.

Sjá einnig: Fasteignamat 2023. 19,9% hækkun.

12 mánaða hækkun vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu stendur þá í 23%. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 2,9% og síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 12,2% samkvæmt HMS.

Svo virðist sem að toppnum á fasteignamarkaði hafi verið náð, eða allavega hefur hækkun fasteignaverðs hægt á sér, sem er skiljanlegt þar sem vextir eru að hækka og meira framboð af fasteignum á markaði.

Auglýsing

Deila grein

Höfundur

Aurlind - Fréttir

Nýjustu fréttir og greiningar, beint frá Aurlind.

Lesa meira