Logo

Auglýsing

FRÉTTIR

December 29, 2021

Fasteignamarkaðurinn í nóvember 2021

Hero image for Fasteignamarkaðurinn í nóvember 2021

Mánaðarvelta fasteigna í nóvember 2021 var 71.698 milljónir króna eða tæplega 72 milljarðar. Mánaðarvelta á höfuðborgarsvæðinu var 50.431 milljónir króna eða rúmlega 50 milljarðar.

Þetta kemur fram í frétt á vef Þjóðskrár.

Sjá einnig: Lítið framboð íbúða til sölu

Fjöldi kaupasamninga í nóvember 2021 voru 739 á höfuðborgarsvæðinu en þar af voru 120 kaupsamningar á sérbýli, 534 kaupsamningur á fjölbýli, 83 kaupsamningar á atvinnuhúsnæðum, 2 kaupsamningar á sumarhúsum og 0 kaupsamningar sem flokkast undir annað.

Fjöldi kaupsamninga voru 1.251 um land allt. Þar af voru 304 kaupsamningar á sérbýli, 767 kaupsamningur á fjölbýli, 124 kaupsamningar á atvinnuhúsnæðum, 29 kaupsamningar á sumarhúsum og 27 kaupsamningar sem flokkast undir annað.

Þegar nóvember 2021 er borinn saman við október 2021 fjölgaði kaupsamningum um 7,8% og velta hækkaði um 14,9%. Á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði samningum um 10% á milli mánaða og velta hækkaði um 17,9%.

Auglýsing

Deila grein

Höfundur

Aurlind - Fréttir

Nýjustu fréttir og greiningar, beint frá Aurlind.

Lesa meira