Logo

Auglýsing

FRÉTTIR

November 24, 2021

Fasteignavelta lækkar um 12,8% á milli mánaða

Hero image for Fasteignavelta lækkar um 12,8% á milli mánaða

Mánaðarvelta fasteigna í október 2021 var 59.683 milljónir króna eða tæplega 60 milljarðar. Mánaðarvelta á höfuðborgarsvæðinu var 40.617 milljónir króna eða tæplega 41 milljarðar.

Þetta kemur fram í frétt á vef Þjóðskrár.

Sjá einnig: Íbúðaverð hækkar hratt í kringum höfuðborgarsvæðið

Fjöldi kaupasamninga í október 2021 voru 684 á höfuðborgarsvæðinu en þar af voru 100 kaupsamningar á sérbýli, 477 kaupsamningur á fjölbýli, 60 kaupsamningar á atvinnuhúsnæðum, 6 kaupsamningar á sumarhúsum og 5 kaupsamningar sem flokkast undir annað.

Fjöldi kaupsamninga voru 1.118 um land allt. Þar af voru 286 kaupsamningar á sérbýli, 687 kaupsamningur á fjölbýli, 94 kaupsamningar á atvinnuhúsnæðum, 33 kaupsamningar á sumarhúsum og 18 kaupsamningar sem flokkast undir annað.

Þegar október 2021 er borinn saman við september 2021 fækkar kaupsamningum um 12,7% og velta lækkar um 12,8%. Á höfuðborgarsvæðinu fækkaði samningum um 10,7% á milli mánaða og velta lækkaði um 14,1%.

Auglýsing

Deila grein

Höfundur

Aurlind - Fréttir

Nýjustu fréttir og greiningar, beint frá Aurlind.

Lesa meira