Logo

Auglýsing

FRÉTTIR

October 28, 2022

Fasteignavelta minnkar en kaupsamningum fjölgar

Hero image for Fasteignavelta minnkar en kaupsamningum fjölgar

Mánaðarvelta fasteigna í september 2022 var 63,3 milljarðar. Mánaðarvelta á höfuðborgarsvæðinu var 45,9 milljarðar.

Þetta kemur fram í frétt á vef HMS.

Sjá einnig: Hvað gerist næst á fasteignamarkaði?

Fjöldi kaupasamninga í september 2022 voru 531 á höfuðborgarsvæðinu en þar af voru 69 kaupsamningar á sérbýli, 393 kaupsamningar á fjölbýli, 63 kaupsamningar á atvinnuhúsnæðum, 1 kaupsamningur á sumarhúsum og 5 kaupsamningar sem flokkast undir annað.

Fjöldi kaupsamninga voru 947 um land allt. Þar af voru 192 kaupsamningar á sérbýli, 586 kaupsamningur á fjölbýli, 99 kaupsamningar á atvinnuhúsnæðum, 45 kaupsamningar á sumarhúsum og 25 kaupsamningar sem flokkast undir annað.

Þegar september 2022 er borinn saman við ágúst 2022 fjölgaði kaupsamningum lítilllega eða um 0,2% en velta minnkaði um 0,2%. Á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði samningum um 7,2% á milli mánaða en velta minnkaði um 1,3%.

Auglýsing

Deila grein

Höfundur

Aurlind - Fréttir

Nýjustu fréttir og greiningar, beint frá Aurlind.

Lesa meira