Logo

Auglýsing

FRÉTTIR

August 19, 2021

Hækkun vísitölu íbúðaverðs í júlí 2021

Hero image for Hækkun vísitölu íbúðaverðs í júlí 2021

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,7% á milli mánaða frá júní til júlí 2021. Þetta er minni hækkun en var í mánuðinum á undan. Hægt er að lesa betur um það hér: Vísitala íbúðaverðs hefur hækkað um 5,8% síðastliðna 3 mánuði.

Þetta bendir til að það sé aðeins farið að hægja á hækkunum, þó svo þær séu ennþá til staðar.

Sjá einnig: Fasteignamarkaðurinn farinn að valda áhyggjum.

12 mánaða hækkun vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu stendur þá í 15,4%. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 3,7% og síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 10,7% samkvæmt nýjustu tölum Þjóðskrár.

Verð á fjölbýli hækkaði um minna en 0,1% á meðan verð á sérbýli hækkaði um 3%.

Auglýsing

Deila grein

Höfundur

Aurlind - Fréttir

Nýjustu fréttir og greiningar, beint frá Aurlind.

Lesa meira