Logo

Auglýsing

FRÉTTIR

January 18, 2023

Hlutdeildarlánum fækkaði verulega á síðasta ári

Hero image for Hlutdeildarlánum fækkaði verulega á síðasta ári

Aðeins voru 67 hlutdeildarlán veitt í fyrra samanborið við 371 árið 2021. Þetta kemur fram í samantekt á vef HMS.

“Hlutdeildarlán hafa það að markmiði að bæta stöðu ungra og tekjulágra á húsnæðismarkaði. Láninu er ætlað að hjálpa fyrstu kaupendum undir ákveðnum tekjumörkum að brúa bilið við fasteignakaup, en lánað er allt að 30% fyrir útborgun en lántaki þarf að reiða fram a.m.k. 5% kaupverðs sjálfur. HMS sér um að greiða út og halda utan um hlutdeildarlánin,” segir í samantektinni.

Taflan hér að neðan sýnir hvernig fjöldi umsókna hefur dreifst frá upphafi:

Hér í töflunni má sjá að HMS hefur veitt 642 hlutdeildarlán á árunum 2020-2022 en umsóknir voru 1.086 á þeim árum. Það þýðir að 59% af umsóknum hafa verið samþykktar.

Samtals hefur 452 fjölskyldum verið veitt hlutdeildar lán og telja þessar fjölskyldur 830 einstaklinga. Flestir eru á aldrinum 24-33 ára sem hafa sótt um eða 54%, en aldursdreifingin nær þó alveg frá 79 ára aldri og niður í 20 ára.

Auglýsing

Deila grein

Höfundur

Aurlind - Fréttir

Nýjustu fréttir og greiningar, beint frá Aurlind.

Lesa meira