Logo

Auglýsing

FRÉTTIR

March 19, 2023

Hvað gerist næst á fasteignamarkaði?

Hero image for Hvað gerist næst á fasteignamarkaði?

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands kemur saman í næstu viku og ákvörðun nefndarinnar um stýrisvaxtabreytingu verður birt miðvikudaginn 22. mars. Landsbankinn spáir 0,75% hækkun.

Sjá einnig: Ró á fasteignamarkaði

Allar líkur eru á að fasteignamarkaðurinn haldi áfram að lækka til styttri tíma ef sú spá gengur eftir.

Eins og kemur fram í þessari frétt, hefur vísitala íbúðaverðs lækkað um 1,4% síðastliðna 3 mánuði, og hefur lækkað 3 mánuði í röð, en hækkað um 0,5% síðastliðna 6 mánuði. Hætta er á að ef þessi spá gengur eftir muni vísatala íbúðaverðs síðastliðna 6 mánuði vera neikvæð.

Við teljum að til styttri tíma muni fasteignaverð lækka en ef Seðlabankinn stöðvar vaxtahækkanir og laun fara að hækka teljum við að fasteignaverð muni standa í stað eða jafnvel byrja að hækka aftur.

Auglýsing

Deila grein

Höfundur

Aurlind - Fréttir

Nýjustu fréttir og greiningar, beint frá Aurlind.

Lesa meira