Logo

Auglýsing

FRÉTTIR

March 22, 2023

Íbúðaverð aftur á uppleið?

Hero image for Íbúðaverð aftur á uppleið?

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,3% á milli mánaða frá janúar til febrúar 2023. Þetta kemur fram í frétt á vef HMS.

12 mánaða hækkun vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu stendur þá í 12,4%. Síðastliðna 3 mánuði lækkaði vísitalan um 0,9% og síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 0,2%.

Sérbýlishluti vísitölunnar lækkaði um 0,2% á milli mánaða á meðan verð á fjölbýli hækkaði um 0,4% á milli mánaða.

Eins og við töluðum um hér þá mun ákvörðun Peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands um stýrisvaxtabreytingu verða birt í dag. Það verður spennandi að sjá hvaða ákvörðun verður tekin.

Sjá einnig: Fasteignamarkaður á niðurleið

Hér fyrir neðan er hægt að sjá þróun vísitölu íbúðaverðs:

Auglýsing

Deila grein

Höfundur

Aurlind - Fréttir

Nýjustu fréttir og greiningar, beint frá Aurlind.

Lesa meira