Logo

Auglýsing

FRÉTTIR

July 17, 2024

Íbúðaverð hækkar um 1,4% annan mánuðinn í röð

Hero image for Íbúðaverð hækkar um 1,4% annan mánuðinn í röð

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 1,4% á milli mánaða frá maí til júní 2024. Þetta kemur fram í frétt á vef HMS. Þetta er þá annan mánuðinn í röð þar sem vísitala íbúðaverðs hækkar um 1,4% á milli mánaða.

12 mánaða hækkun vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu stendur þá í 9,1% sem er rúmum þremur prósentustigum yfir verðbólgu.

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat

Sérbýlishluti vísitölunnar á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 1,7% á milli mánaða á meðan verð á fjölbýli hækkaði um 1,3% á milli mánaða.

Sérbýlishluti vísitölunnar á landsbyggðinni hækkaði um 1,3% á milli mánaða á meðan verð á fjölbýli hækkaði um 2,3% á milli mánaða.

Sjá einnig: Flest­ar íbúð­ir á yfir 60 millj­ónum króna

Hér fyrir neðan er hægt að sjá þróun vísitölu íbúðaverðs:

Auglýsing

Deila grein

Höfundur

Ægir Hreinn Bjarnason
Ægir Hreinn Bjarnason
Aurlind
aegir@aurlind.is

Aurlind - Fréttir

Nýjustu fréttir og greiningar, beint frá Aurlind.

Lesa meira