Logo

Auglýsing

FRÉTTIR

August 6, 2023

Íbúðaverð lækkar í júní

Hero image for Íbúðaverð lækkar í júní

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 1,1% á milli mánaða frá maí til júní 2023. Þetta kemur fram í frétt á vef HMS.

12 mánaða hækkun vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu stendur þá í 2,7%. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 0,3% og síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 1,6%.

Sérbýlishluti vísitölunnar lækkaði um 0,9% á milli mánaða á meðan verð á fjölbýli lækkaði um 1,1% á milli mánaða.

Sjá einnig: Hvert stefnir fasteignamarkaður?

Hér fyrir neðan er hægt að sjá þróun vísitölu íbúðaverðs:

Auglýsing

Deila grein

Höfundur

Aurlind - Fréttir

Nýjustu fréttir og greiningar, beint frá Aurlind.

Lesa meira