Logo

Auglýsing

FRÉTTIR

August 21, 2021

Kaupsamningum fækkar um 12,2% á milli mánaða

Hero image for Kaupsamningum fækkar um 12,2% á milli mánaða

Fjöldi kaupasamninga í júlí 2021 voru 699 á höfuðborgarsvæðinu en þar af voru 105 kaupsamningar á sérbýli, 547 kaupsamningur á fjölbýli, 41 kaupsamningar á atvinnuhúsnæðum, 3 kaupsamningar á sumarhúsum og 3 kaupsamningar sem flokkast undir annað.

Fjöldi kaupsamninga voru 1.219 um land allt. Þar af voru 292 kaupsamningar á sérbýli, 780 kaupsamningur á fjölbýli, 70 kaupsamningar á atvinnuhúsnæðum, 55 kaupsamningar á sumarhúsum og 22 kaupsamningar sem flokkast undir annað.

Þetta kemur fram í frétt á vef Þjóðskrár.

Sjá einnig: Hækkun vísitölu íbúðaverðs í júlí 2021.

Mánaðarvelta fasteigna í júlí 2021 var 65.979 milljónir króna eða tæplega 66 milljarðar. Mánaðarvelta á höfuðborgarsvæðinu var 45.520 milljónir króna eða rúmlega 45,5 milljarðar.

Þegar júlí 2021 er borinn saman við júní 2021 fækkar kaupsamningum um 12,2% og velta lækkar um 9,2%. Á höfuðborgarsvæðinu fækkaði samningum um 16% á milli mánaða og velta lækkaði um 11,8%.

Sjá einnig: Seljendamarkaður eða kaupendamarkaður.

Auglýsing

Deila grein

Höfundur

Aurlind - Fréttir

Nýjustu fréttir og greiningar, beint frá Aurlind.

Lesa meira