Logo

Auglýsing

FRÉTTIR

September 24, 2021

Leiguverð hækkar í ágúst 2021

Hero image for Leiguverð hækkar í ágúst 2021

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 1,9% á milli mánaða frá júlí til ágúst 2021 samkvæmt nýjustu tölum Þjóðskrár.

Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 2,9% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 3,5%.

Sjá einnig: Tekjur á Airbnb aukast

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 858 samningar, sem þinglýst var í ágúst 2021. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í ágúst 2021 eru því unnar upp úr 658 leigusamningum sem þinglýst var í ágúst 2021.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í ágúst 2021 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Staðsetningarnar eru: Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes, Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar, Kópavogur, Garðabær og Hafnarfjörður, Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur, Breiðholt, Kjalarnes og Mosfellsbær, Suðurnes, Vesturland, Vestfirðir, Norðurland nema Akureyri, Akureyri, Austurland og Suðurland.

Auglýsing

Deila grein

Höfundur

Aurlind - Fréttir

Nýjustu fréttir og greiningar, beint frá Aurlind.

Lesa meira