
Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 1,3% á milli mánaða frá júní til júlí 2021 samkvæmt nýjustu tölum Þjóðskrár.
Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 1,1% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 1,7%.
Sjá einnig: Hver er meðalaldur fyrstu kaupenda?
Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 542 samningar, sem þinglýst var í júlí 2021. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í júlí 2021 eru því unnar upp úr 460 leigusamningum sem þinglýst var í júlí 2021.
Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í júlí 2021 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.
Stúdíó íbúð
2 herbergi
3 herbergi
4-5 herbergi
Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes
3795
3294
2966
2981
Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar
4568
3217
2542
2515
Kópavogur
3742
2705
2497
2341
Garðabær og Hafnarfjörður
4977
3305
2518
2286
Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur
4905
2949
2311
2366
Breiðholt
3536
3159
2653
2078
Kjalarnes og Mosfellsbær
–
2424
2385
–
Suðurnes
–
2778
2038
1649
Vesturland
–
1912
1909
1684
Vestfirðir
–
–
–
–
Norðurland nema Akureyri
–
–
1182
1429
Akureyri
3170
2371
2025
1836
Austurland
–
1891
–
–
Suðurland
–
2514
1865
1671
Auglýsing
Auglýsing
Höfundur



