
Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 0,3% á milli mánaða frá maí til júní 2021 samkvæmt nýjustu tölum Þjóðskrár.
Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 0,3% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 0,9%.
Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 647 samningar, sem þinglýst var í júní 2021. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í júní 2021 eru því unnar upp úr 538 leigusamningum sem þinglýst var í júní 2021.
Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í júní 2021 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.
Stúdíó íbúð
2 herbergi
3 herbergi
4-5 herbergi
Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes
4454
3307
2767
2546
Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar
4067
2978
2598
1771
Kópavogur
2975
2862
2550
2228
Garðabær og Hafnarfjörður
3421
2929
2645
2146
Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur
–
2786
2717
2255
Breiðholt
4351
2974
2560
1927
Kjalarnes og Mosfellsbær
–
–
–
2381
Suðurnes
3138
2404
1941
1726
Vesturland
–
2120
1679
1832
Vestfirðir
–
–
1564
–
Norðurland nema Akureyri
–
1632
–
1023
Akureyri
–
2461
1957
1952
Austurland
–
1965
–
–
Suðurland
–
2440
1585
2004
Auglýsing
Auglýsing
Höfundur



