Logo

Auglýsing

FRÉTTIR

April 10, 2021

Seljendamarkaður eða kaupendamarkaður

Hero image for Seljendamarkaður eða kaupendamarkaður

Fasteignamarkaðurinn skiptist í að vera seljendamarkaður og kaupendamarkaður, og það er í rauninni margt sem hefur áhrif á það.

Seljendamarkaður er þegar það er meiri eftirspurn eftir eignum heldur en framboð og þá er kjörið tækifæri fyrir seljendur að selja sína eign. Í seljendamarkaði fá seljendur betra verð fyrir eignina sína en seljendamarkaður getur t.d. verið út af launahækkunum, skorti á fasteignum eða þegar vextir lækka.

Kaupendamarkaður er þegar það er meira framboð af eignum heldur en eftirspurn og þá er kjörið tækifæri fyrir kaupendur að gera góð kaup. Á kaupendamarkaði þurfa kaupendur ekki að keppast eins mikið við aðra kaupendur til að kaupa eign en kaupendamarkaður getur t.d. verið út af launalækkunum, offramboð á fasteignum eða þegar vextir hækka.

Það skiptir einnig máli upp á söluverðmat eignar hvort það sé seljenda- eða kaupendamarkaður.

Auglýsing

Deila grein

Höfundur

Aurlind - Fréttir

Nýjustu fréttir og greiningar, beint frá Aurlind.

Lesa meira