Logo

Auglýsing

FRÉTTIR

January 2, 2023

Verðmat fasteigna hækkar um 2.100 milljarða

Hero image for Verðmat fasteigna hækkar um 2.100 milljarða

Nýtt fasteignamat tók gildi þann 31. desember 2022 en heildarvirði allra fasteigna landsins, bæði fyrir íbúðarhús og atvinnuhúsnæði telst vera 12.800 milljarðar króna en alls eru um 220 þúsund fasteignir á Íslandi. Verðmæti þeirra jókst talsvert milli ára, eða um 2.100 milljarða króna. Miðað við þessar tölur jafngildir þetta 33 milljónum króna á hvern íbúa á Íslandi eða um 42 milljónir á hvern íbúa sem er 18 ára og eldri. Þetta kemur fram í frétt á vef HMS.

Sjá einnig: Fasteignamarkaður heldur áfram að kólna

Á að gefa raunhæfa mynd af verðmæti fasteigna

“Fasteignamatið er endurmetið árlega og var matið, sem nú tekur gildi, fyrst kynnt fasteignaeigendum í júní og miðaðist við gangverð fasteigna í febrúar 2022. Verðþróun það sem eftir lifir af árinu kemur ekki inn í matið fyrr en árið á eftir. Fjölmörg tól og gagnabankar nýtast við verðmatið en aðferðafræðin sem notuð er við fasteignamatið á að gefa raunhæfa mynd af verði fasteigna. Meðal annars er horft til nýlegra viðskipta með sambærilegt húsnæði á hverjum stað,” segir í skýrslunni.

Fasteignamatið er mikilvægt annars vegar fyrir fjármálastofnanir, sem nota fasteignamat við lánveitingar til íbúðakaupa og hins vegar fyrir sveitarfélög, en fasteignagjöld eru reiknuð út frá fasteignamati.

Auglýsing

Deila grein

Höfundur

Aurlind - Fréttir

Nýjustu fréttir og greiningar, beint frá Aurlind.

Lesa meira