Logo

Auglýsing

FRÉTTIR

September 28, 2021

Viðskipti með atvinnuhúsnæði í ágúst 2021

Hero image for Viðskipti með atvinnuhúsnæði í ágúst 2021

32 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu var þinglýst í ágúst 2021. Heildarfasteignamat seldra eigna var 2.219 milljónir króna eða rúmlega 2 milljarðar.

Þetta kemur fram í frétt á vef Þjóðskrár.

Þar af voru 21 kaupsamningar um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 1.895 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 1.539 milljónir króna.

Sjá einnig: Viðskipti með atvinnuhúsnæði í júlí 2021

44 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins var þinglýst á sama tíma. Heildarfasteignamat seldra eigna var 1.314 milljónir króna eða rúmlega 1,3 milljarðar.

Þar af voru 13 kaupsamningur um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 397 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 241 milljónir króna.

Auglýsing

Deila grein

Höfundur

Aurlind - Fréttir

Nýjustu fréttir og greiningar, beint frá Aurlind.

Lesa meira