Logo

Auglýsing

FRÉTTIR

January 31, 2023

Viðskipti með atvinnuhúsnæði í desember 2022

Hero image for Viðskipti með atvinnuhúsnæði í desember 2022

34 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu var þinglýst í desember 2022. Heildarfasteignamat seldra eigna var 11.083 milljónir króna eða rúmlega 11 milljarðar.

Þetta kemur fram í frétt á vef HMS.

Þar af voru 33 kaupsamningar um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 3.210 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 2.198 milljónir króna.

Sjá einnig: Fasteignamarkaður orðinn kaupendamarkaður

56 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins var þinglýst á sama tíma.

Þar af voru 32 kaupsamningur um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 1.225 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 1.219 milljónir króna.

Auglýsing

Deila grein

Höfundur

Aurlind - Fréttir

Nýjustu fréttir og greiningar, beint frá Aurlind.

Lesa meira